 |
 |
 |
Jun 15, 2007
ný síða
Posted at 06:38 am by Hrobjartur
Feb 23, 2007
Everytime when I walk into the kitchen, you're in the kitchen
Veikindi og flensa er eitthvað sem ég skil ekki tilganginn með. Árið 2007 ætti að vera búið að finna eilífðarmótefni gegn kvefi og hormyndun. Við hjónaleysin erum búin að liggja alla vikuna í rúminu, ég þó skárri en Ágústa greyið þar sem ég slapp við lungnabólguna. Eitthvað er þó heilsan að skána sem er vel, því á morgun mun Fljúgðu Haukur samsteypan gera sér glaðan dag og því má ekki missa af. Dvölin hjá KR í vettvangsnámi hefur verið fín, við Valli erum búnar að fylgjast með æfingum hjá öllum flokkum og meta þjálfunina og er síðasti dagurinn hjá okkur í dag.
Samúðarkveðjurnar fá frændur okkar í klámiðnaðinum sem eru fyrirlitnir fyrir það sem þeir gera opinberlega, þó flest allir skoði þeirra verk, óopinberlega. Persónulega vildi ég frekar að Ron Jeremy myndi setjast hér að heldur en Bobby Fischer.
ses
Posted at 03:31 am by Hrobjartur
Feb 7, 2007
once upon a time in the east
Posted at 02:02 am by Hrobjartur
Jan 10, 2007
stupid people
Af hverju þurfa Íslendingar alltaf að vera að lemja hvern annan? 4 Íslendingar að meðaltali á dag á landsspítalann útaf ofbeldi! Berja þetta lið....
Posted at 05:11 am by Hrobjartur
Dec 28, 2006
Áttfarar

Þetta er celebin sem þykja lík mér. Ég er sérstaklega ánægður með Desmond Llewellyn sem lést 86 ára gamall árið 1999 og Meryl Streep, sem ég vissi hreint ekki að svipaði til mín
Posted at 06:17 am by Hrobjartur
Dec 12, 2006
School's out
Síðasta verkefnið komið til skila og skólinn loksins búinn Við Gústa erum að fara austur á morgun með pabba til að slappa aðeins af í sveitasælunni. Hugmyndin er svo að fara kannski á bretti til Akureyrar næstu helgi, samt ekki komið á hreint, fer eftir veðri og vindum. Eftir jól erum við Valli svo að fara í vettvangsnám til Teits Þórðar hjá KR, verður athyglisvert
En allavega, það sem ég vildi sagt hafa:
Gleðileg Jól

Posted at 06:05 am by Hrobjartur
Nov 18, 2006
Alive
Kominn tími á að maður láti vita af sér....Ýmislegt hefur á dagana drifið síðan að seinasta blogg leit dagsins ljós. Hæst ber að nefna Bandaríkjaför í byjun október með mater og pater, Gústu, Soffa og Söndru. Flugum til Minneapolis og keyrðum svo eins og manískir túristar um það bil 5000 km. Sáum hina ýmsu þjóðgarða, Mount Rushmore, Yellowstone, Devils Tower og headbangandi hross svo eitthvað sé nefnt. Jónsi á Mýrum fór svo á 40 ára reunion í Rockford þar sem við vorum síðustu dagana. Ýmislegt var gert sér til dundurs í ferðinni, t.d. verslað og farið á barinn í Pahaska Tapee. Tær snilld í alla staði þessi ferð og hér eru nokkrar myndir því til staðfestingar.
Myndir úr Bandaríkjaferð
Annars er ég bara í skólanum á fullu, fullt af verkefnum og lokaprófum í hverri viku og engin jólapróf í desember sem er bara hlussufínt. Svo er maður eitthvað að reyna að vera með í körfunni sem gengur brösuglega sökum krónískra nárameiðsla og bólgu í löngutöng sem virðist ekki ætla að fara. Fórum í leik á Höfn meðal annars þar sem við gistum og tókum gott djamm þar sem við sögu kom bjór, mikið af ópalskotum og ástleitinn hundur....
Svo var ég gerður að sjoppustjóra útskriftarhópsins, loksins kominn með opinberan titil og geri ég þær kröfur að vera ávarpaður herra sjoppustjóri hér eftir. Við erum semsagt að fara í útskriftarferð á Playa del Carmen í Mexíkó í maí, spurning hvort ferðin nái að toppa ME útskriftarferðina til Benidorm 2000.
Akademíukrakkarnir komu í heimsókn á Laugarvatn á fimmtudagskvöldið þar sem þeir voru sigraðir í hinum ýmsu íþróttagreinum. Kallinn var í blakliðinu og unnum við nauman sigur enda með tvo kappa með 40 ára samanlagða reynslu. Því næst voru étnar pizzur og Kjartan talaði Gilzenegger í kaf, og loks tók við skemmtikvöld þar sem við fengum sigurbikarinn afhentann og hvert ár var með skemmtiatriði. Fyrsta árið var með eighties dansatriði og annað árið með djúpulaugaratriði þar sem Harpa H. játaði ást sína á Gilzenegger sem brást hinn vandræðalegasti við. Síðan var djamm á vistinni. Helvíti skemmtileg heimsókn og ég vona að við verðum með góða mætingu þegar við heimsækjum akademínuna í febrúar.
Helgina á að nýta í smávegis lærdóm, tiltekt og fótboltaáhorf, United-Sheffield United, ditën e mirë (bless á albönsku)
Posted at 05:12 am by Hrobjartur
Sep 18, 2006
Magni

Magni á google
Posted at 08:30 am by Hrobjartur
Aug 22, 2006
ómenning
Menningarsjokkið eftir menningarnóttina er ennþá til staðar á þriðjudegi, þvílík snilld. Steini Jobba bauð í gardenpartý í blokkargarðinum á Hringbrautinni, hlýtur að vera búið að bera greyið út eftir þetta... Síðan var farið í bæinn og heim uppúr hálf fimm. Hvað gerðist þarna á milli er vafamál og rifjast kannski upp næstu vikurnar.

Frá Menningarnótt í Reykjavík
Á sunnudaginn horfðum við á United saurga Fulham og um kvöldið var hópferð í Laugardaglinn til að horfa á Val-Víking. Við Ágústa pikkuðum upp Guðmund frá Þrastarlundi og síðan mætti Þorkell "ég heiti Hlöðver" ásamt tengdapabba sínum en þeir eru gallharðir Valsarar. Við neiddumst til að færa okkur úr stað þegar á völlinn var komið þar sem spikfeitur, blindfullur víkingsstuðningsmaður plantaði sér beint fyrir framan okkur með risastóran víkingsfána og söng Fðvíkingur, Fðvíkingur með viðeigandi frussi og fánasveiflum. Leikurinn reyndist líka vera nauðgun í augntóftirnar, svo leiðinlegur var hann. Alltaf gaman að fara á völlinn samt....
 
Valur Víkingur
En sceize hvað manni er farið að hlakka til að byrja í skólanum! Orðinn nett leiður á að vinna. Vona bara að veturinn verði skemmtilegur og fyrsta árs nemarnir líka.

Frá Laugarvatni
Jæja, enuffsnuff.
Posted at 05:25 am by Hrobjartur
Aug 14, 2006
15:11
Algert brokeback í liðnum veiðiferðum, var meira að segja illt í rassinum eftir þá síðustu. Sýndi sumarbústaðaeigendum við Álftavatn færni mína í róðri og stuttu seinna var hringt í mig frá Oxford og ég beðinn um að ganga til liðs við þá fyrir árlegu róðrarkeppnina við Cambridge... nott.
KR-Keflavíkurleikurinn var fínn, 2-2 og Grétar setti eitt. Ef einhvern vantar miða á leik þá getiði prufað að tala við mig, Björgólfur er alltaf að gefa mér miða. Annars er manni farið að hlakka til að fara í skólann og svo til Bandaríkjanna í október, allt að gerast. Ekki hlakka ég jafn mikið til að fara til læknis, held að ég þjáist af svokölluðum Gilmores groin, sem kemur bara fyrir þá sem horfa of mikið á þáttinn Gilmore Girls.

Posted at 08:00 am by Hrobjartur
|
|
 |
|
 |
|