burt með þennan hund þarna...



Aug 9, 2006
Stuð í landsbankanum

Já ekki gerði maður mikið um helgina nema kojufylleríast og spila. Sparnaðarhugsjónirnar að drepa mann þessa dagana. En nú taka við bjartari tímar þar sem ég fæ kjötsúpu í matinn í kvöld og fer að veiða á morgun, ætlum að kíkja í Ölfusárós. Já og svo verður farið á völlinn í kvöld, KR-Keflavík, að hvetja Grétar vinnufélaga, held hann skori þrennu.Angel

Jæja faxtækið kallar, bæ.

 


Posted at 08:49 am by Hrobjartur
Make a comment

Aug 6, 2006
Versl.mann.helg.

Hversu lélegt er það að drekka rúman kassa af bjór á 2 dögum en fara ekki í bæinn eða gera neitt? Ætla að bæta úr því í kvöld. Verslunarhelgin byrjaði annars á því að ég hringdi í neyðarlínuna þegar við keyrðum framhjá manni sem var alblóðugur, blindfullur á brókinni ráfandi um Grafarvoginn og ég held hann hafi verið búinn að kúka á sig. Helgin byrjaði svo sannarlega með stæl hjá honum.Shocked

En jæja, ginið bíður.

Ætla að reyna að kúka ekki á mig í kvöld


Posted at 03:21 pm by Hrobjartur
Comments (2)

Aug 4, 2006
Reyklaus.co.uk

Ég er búinn að vera hættur að reykja í 10 mánuði! Í til efni þess mun ég reykja 3 karton af filterslausum kamel og bæta 3 heimsmet Jim Mouth, reykja 159 sígarettur í einu, 41 vindil og 41 pípu.

 


Posted at 02:43 am by Hrobjartur
Make a comment

Jul 31, 2006
Dagurinn í dag

er merkilegur fyrir ýmsar sakir.  Á þessum degi fæddust ekki ómerkari menn en Liberace, Bob Welch í Fleetwod Mac og Dean Cain sem lék Superman. Kristófer Kólumbus kom að Trinidad í sinni þriðju heimsreisu og Nicolas Cage fékk stjörnu á Hollywood Walk of fame. Og Manchester keyptu Carrick fyrir fjárlög Afríku eins og hún leggur sig. Eins gott að hann skori 1000 mörk og leggi upp 2500 á næstu leiktíð.

Verlsunarmannahelgi um næstu helgi þar sem allir eru í fríi nema verslunarmenn. Ætli maður hafi sig ekki bara hægan, skreppum kannski eitthvað ef veður leyfir. Annars var bjórþorstanum svalað ágætlega á laugardaginn múhahaShades

Hversu margir ætla að vera í þessum pakka um helgina??Tongue


Posted at 05:24 am by Hrobjartur
Comments (1)

Jul 19, 2006
Tvífarar vikunnar

               Nói Albínói                                                Lilian Thuram


Posted at 07:41 am by Hrobjartur
Make a comment

Jul 5, 2006
aktivheit

Eftir leiðindaveikindi og slappleika ákvað ég að vera bara duglegur um helgina. Fór að djamma með Þorkeli á föstudaginn og kíkti svo í tvö teiti á laugardaginn, til McVíðis og svo til Elsu. Fórum í bæinn og biðum í röðum og fórum svo heim. Held að ég sé kominn með djammleiða, þetta er varla þynkunnar virði lengur, þó ágætt sé í hófi. Langar mest til að sitja á pallinum á búgarðinum mínum með hatt og strá í kjaftinum um helgar og horfa á fugla og sötra te. Við grilluðum svo á sunnudaginn þar sem Víðir, KO, Guðmundur Ingvi og Stebbi litu við og Stebbi sporðrenndi 450 gr nautalund eins og hún væri princepolo.

Er að spá í að fara austur um helgina, Gústa er að fara í kellingaferð til London. Kannski maður taki mas leik með Þristinum.

þartilnæst, Einz

 

Tvífarar mánaðarins

Danny Trejo leikari                                                Mauro Camoranesi fótboltamaður


Posted at 06:39 am by Hrobjartur
Make a comment

Jun 29, 2006
Tíminn líður hratt...

Þessi vika er alveg jafn lengi að líða eins og síðasta var fljót. Skrýtið hvernig tíminn tekur mið af því hversu mikið maður hefur að gera og hversu skemmtilegt það er...já merkilegt. Síðasta helgi var góð, ég og ágústa pössuðum börn og fórum í útskriftarpartý til Þóru, takk fyrir okkur, og svo í útskriftarhitting hjá Laugarvatnsfólkinu sem var að útskrifast.

Það eru allir að fara til útlanda nema ég. Gústa er að fara til London þarnæstu helgi og svo eru náttúrulega allir á keldunni eða nýkomnir úr útskriftarferð eða á leiðinni í sumarfrí. Glatað. Annars er stefnan vonandi sett á veiðiferð á næstunni, eitthvað verður maður að gera.

Gústa splæsti svo á mig nýja Pearl Jam disknum, ég er að fílann


Posted at 04:43 am by Hrobjartur
Make a comment

Jun 14, 2006
.


Posted at 05:17 am by Hrobjartur
Comments (2)

Jun 9, 2006
hehe


Posted at 09:05 am by Hrobjartur
Make a comment

Bloggmaster 3000

Sökum dugnaðar í bloggi hef ég hlotið viðurnefnið Bloggmaster 3000 og hef verið gerður að aðalritara blogdrive samtakanna.

Við Ágústa erum búin að vera fyrir austan að planta og dreifa áburði síðan skólinn kláraðist og er óhætt að segja að stemningin í því hafi verið magnþrungin. Skellti mér að veiða inn í dal í síðustu viku og náði þessum hérna félögum, 2.5 og 2 pund:

Við komum síðan keyrandi í bæinn á mánudaginn og ég byrjaði að vinna á skjalasafninu á þriðjudaginn.

Skellti mér á vormót ÍR í frjálsum á Laugardalsvellinum á miðvikudaginn, keppti í spjóti og gekk ágætlega miðað við fyrsta mót og sonna, 51.67 metrar. Um helgina erum við hjúin svo að fara á ættarmót í Gústu ætt rétt hjá Laugarvatni. Spurning um að hella í sig thor kassa og dansa nektariverdans fyrir tengdafólkið.....eða hvað.

Veriði stress, ekkert bless, hress


Posted at 05:22 am by Hrobjartur
Make a comment

Previous Page Next Page


Ég heiti Einar Hróbjartur
Ég er 26 ára
Ég er ljón
Msn-ið mitt er einarhro@hotmail.com


   





Contact Me

If you want to be updated on this weblog Enter your email here:


rss feed

Blogdrive