Entry: Everytime when I walk into the kitchen, you're in the kitchen Feb 23, 2007



Veikindi og flensa er eitthvað sem ég skil ekki tilganginn með.  Árið 2007 ætti að vera búið að finna eilífðarmótefni gegn kvefi og hormyndun. Við hjónaleysin erum búin að liggja alla vikuna í rúminu, ég þó skárri en Ágústa greyið þar sem ég slapp við lungnabólguna. Eitthvað er þó heilsan að skána sem er vel, því á morgun mun Fljúgðu Haukur samsteypan gera sér glaðan dag og því má ekki missa af. Dvölin hjá KR í vettvangsnámi hefur verið fín, við Valli erum búnar að fylgjast með æfingum hjá öllum flokkum og meta þjálfunina og er síðasti dagurinn hjá okkur í dag.

Samúðarkveðjurnar fá frændur okkar í klámiðnaðinum sem eru fyrirlitnir fyrir það sem þeir gera opinberlega, þó flest allir skoði þeirra verk, óopinberlega. Persónulega vildi ég frekar að Ron Jeremy myndi setjast hér að heldur en Bobby Fischer.

ses

   1 comments

Engifermundur Klósettkell
February 23, 2007   07:35 AM PST
 
Komið hefur í ljós að Ron Jeremy, Ron Atkinson og Jeremy Irons voru herbergisfélagar í gagnfræðaskóla.

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments