|
Kominn tími á að maður láti vita af sér....Ýmislegt hefur á dagana drifið síðan að seinasta blogg leit dagsins ljós. Hæst ber að nefna Bandaríkjaför í byjun október með mater og pater, Gústu, Soffa og Söndru. Flugum til Minneapolis og keyrðum svo eins og manískir túristar um það bil 5000 km. Sáum hina ýmsu þjóðgarða, Mount Rushmore, Yellowstone, Devils Tower og headbangandi hross svo eitthvað sé nefnt. Jónsi á Mýrum fór svo á 40 ára reunion í Rockford þar sem við vorum síðustu dagana. Ýmislegt var gert sér til dundurs í ferðinni, t.d. verslað og farið á barinn í Pahaska Tapee. Tær snilld í alla staði þessi ferð og hér eru nokkrar myndir því til staðfestingar.
Annars er ég bara í skólanum á fullu, fullt af verkefnum og lokaprófum í hverri viku og engin jólapróf í desember sem er bara hlussufínt. Svo er maður eitthvað að reyna að vera með í körfunni sem gengur brösuglega sökum krónískra nárameiðsla og bólgu í löngutöng sem virðist ekki ætla að fara. Fórum í leik á Höfn meðal annars þar sem við gistum og tókum gott djamm þar sem við sögu kom bjór, mikið af ópalskotum og ástleitinn hundur.... Svo var ég gerður að sjoppustjóra útskriftarhópsins, loksins kominn með opinberan titil og geri ég þær kröfur að vera ávarpaður herra sjoppustjóri hér eftir. Við erum semsagt að fara í útskriftarferð á Playa del Carmen í Mexíkó í maí, spurning hvort ferðin nái að toppa ME útskriftarferðina til Benidorm 2000. Akademíukrakkarnir komu í heimsókn á Laugarvatn á fimmtudagskvöldið þar sem þeir voru sigraðir í hinum ýmsu íþróttagreinum. Kallinn var í blakliðinu og unnum við nauman sigur enda með tvo kappa með 40 ára samanlagða reynslu. Því næst voru étnar pizzur og Kjartan talaði Gilzenegger í kaf, og loks tók við skemmtikvöld þar sem við fengum sigurbikarinn afhentann og hvert ár var með skemmtiatriði. Fyrsta árið var með eighties dansatriði og annað árið með djúpulaugaratriði þar sem Harpa H. játaði ást sína á Gilzenegger sem brást hinn vandræðalegasti við. Síðan var djamm á vistinni. Helvíti skemmtileg heimsókn og ég vona að við verðum með góða mætingu þegar við heimsækjum akademínuna í febrúar. Helgina á að nýta í smávegis lærdóm, tiltekt og fótboltaáhorf, United-Sheffield United, ditën e mirë (bless á albönsku) |
| Soffía November 21, 2006 10:57 AM PST Benidorm ferðin 2000 verður aldrei slegin út ;) | ||
| Gústa November 19, 2006 04:09 PM PST Vá við náðum að gera allt sem við ætluðum okkur um helgina! Passar ekki smávegis lærdómur við það sem við vorum að gera áðan ;) heheh.. eins gott að þú tókst það fram að þetta átti bara að vera smávegis! hjúkket... | ||
| Leave a Comment: |